Til að stækka letur: haldið niðri ctrl. takka og smellið á + takkann
Iðjuþjálfafélag Íslands (skammstafað IÞÍ) er fagstéttarfélag og þjónar þannig margþættu hlutverki.
Markmið og meginviðfangsefni félagsins eru: Að gæta hagsmuna iðjuþjálfa og efla samvinnu og samheldni innan stéttarinnar Að efla þróun og standa vörð um gæði iðjuþjálfunar á Íslandi Að stuðla að bættri menntun og aukinn faglegri vitund iðjuþjálfa Að efla samstarf við iðjuþjálfa erlendis og tengsl við hliðstæða starfshópa innanlands sem utan Að kynna menntun og starf iðjuþjálfa Að vinna að heilbrigði landsmanna
IÞÍ var stofnað í mars 1976 og voru félagar þá tíu talsins en eru í dag um 185. Innan félagsins er unnið metnaðarfullt starf til þess að ná ofangreindum markmiðum og fjölmargir félagsmenn starfa í stjórnum og nefndum. Iðjuþjálfafélag Íslands er aðili að Heimssambandi iðjuþjálfa (WFOT) og Iðjuþjálfanefnd Evrópuþjóða (COTEC) og tekur ennfremur þátt í öflugu samstarfi norrænu iðjuþjálfafélaganna. IÞÍ er aðili að Bandalagi háskólamanna. IÞÍ gefur út fagblaðið Iðjuþjálfann sem er innifalið í félagsgjöldum.
IÞÍ rekur þjónustuskrifstofu í samvinnu við þrjú önnur stéttarfélög í höfuðstöðvum Bandalags háskólamanna að Borgartúni 6, Reykjavík. Nafn þjónustuskrifstofunnar er SIGL en það eru upphafsstafir þeirra stéttarfélaga sem standa að rekstri skrifstofunnar: sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, geislafræðingar og lífeindafræðingar.