Siðareglur Iðjuþjálfafélags Íslands, samþykktar á aðalfundi 10. mars 2001 Með siðareglum er haldið á lofti þeim gildum og meginsjónarmiðum sem iðjuþjálfun byggist á. Þeim er ætlað að leiðbeina iðjuþjálfum og nemum í iðjuþjálfun og stuðla að bættri þjónustu iðjuþjálfa. Mælt er með því að atvinnurekendur felli siðareglurnar inn í starfssamninga iðjuþjálfa. Komi upp óvissa eða ágreiningur varðandi túlkun eða notkun siðareglnanna, skal beina fyrirspurnum til siðanefndar Iðjuþjálfafélags Íslands (IÞÍ). Hver sá sem telur að iðjuþjálfi hafi brotið gegn siðareglum þessum getur kært ætlað brot til siðanefndar IÞÍ. Endurskoðun siðareglnanna er á ábyrgð stjórnar Iðjuþjálfafélags Íslands. Hlutverk iðjuþjálfa Iðjuþjálfar vinna með skjólstæðingum sínum við að efla færni þeirra með það að markmiði að þeir öðlist meira sjálfstæði og lífsfyllingu. Iðjuþjálfar starfa við heilsueflingu og forvarnir, jafnt sem hæfingu og endurhæfingu. Sjónarmið iðjuþjálfunar Iðjuþjálfun byggist á þeirri hugmyndafræði að það sé mikilvægt fyrir heilsu og vellíðan fólks að móta og stunda þá iðju sem fullnægir þörfum þess og áhuga og er í samræmi við kröfur og venjur samfélagsins. Með iðju er átt við öll þau verk og athafnir sem fólk tekur þátt í til að annast sjálft sig, njóta lífsins og koma samfélaginu að gagni. Iðjuþjálfar aðhyllast skjólstæðingsmiðaða nálgun og virka þátttöku skjólstæðingsins á öllum stigum þjónustunnar. Skjólstæðingar iðjuþjálfa eru oftast einstaklingar eða hópar sem vegna röskunar á þroska, veikinda, áfalla eða öldrunar hafa takmarkaða möguleika til iðju. Iðjuþjálfar veita einnig þjónustu innan stjórnsýslu, félagasamtökum og stofnunum sem hafa áhrif á heilsufar fólks og möguleika þess til að stunda iðju. Eftirfarandi sjónarmið eru höfð að leiðarljósi:
1. Iðjuþjálfi og skjólstæðingar 2. Iðjuþjálfi og starf, rannsóknir og menntun 2.1. Iðjuþjálfi vinnur samkvæmt hugmyndafræði og sjónarmiðum iðjuþjálfunar, axlarþá ábyrgð og virðirþau takmörk sem fylgja menntun hans og starfi. 2.2. Iðjuþjálfi er trúr sannfæringu sinni og getur synjað því að veita íhlutun, sem hann treystir sér ekki til að bera faglega ábyrgð á. 2.3. Iðjuþjálfi eykur þekkingu sína og nýtir sér nýfengna þekkingu jafnóðum í starfi. 2.4. Iðjuþjálfi nýtir sér rannsóknir og kenningar í starfi og axlar ábyrgð sína á þróun iðjuþjálfunar sem fræðigreinar. 2.5. Hvar sem iðjuþjálfi kemur fram í nafni menntunar sinnar ber hann orðstír sinn og stéttar sinnar fyrir brjósti. Þetta á við um alla framsetningu, jafnt í ræðu og riti. 2.6. Iðjuþjálfi sinnir ekki starfi sínu undir áhrifum áfengis,lyfja eða annarra efna sem slæva dómgreind hans og athygli. 3. Iðjuþjálfi og samstarfsfólk 3.1. Iðjuþjálfi vinnur af heilindum og heiðarleika í öllu samstarfi með hagsmuni skjólstæðinga sinna að leiðarljósi. 3.2. Iðjuþjálfi miðlar af þekkingu sinni og reynslu til annarra iðjuþjálfa, nemenda og samstarfsfólks. 3.3. Iðjuþjálfi sýnir stéttvísi en virðir jafnframt störf annarra fagstétta og sérþekkingu þeirra. 3.4. Iðjuþjálfi virðir hæfni, skyldur og ábyrgð annarra iðjuþjálfa. Komi upp faglegur ágreiningur skal iðjuþjálfi beita gagnrýni af sanngirni og reyna að miðla málum svo niðurstaða fáist með hagsmuni skjólstæðinga að leiðarljósi. 3.5. Telji iðjuþjálfi að annar iðjuþjálfi hafi brotið gegn siðareglum iðjuþjálfa, getur viðkomandi óskað eftir umfjöllun siðanefndar Iðjuþjálfafélags Íslands, hafi ábendingar og viðræður ekki borið árangur. 3.6. Telji iðjuþjálfi að samstarfsaðili vinni gegn hagsmunum skjólstæðings ber honum skylda til að tilkynna það viðeigandi aðila, hafi ábendingar og viðræður ekki borið árangur. 4. Iðjuþjálfi og samfélagið 4.1. Iðjuþjálfi nýtir þekkingu og reynslu sína í þágu samfélagsins. 4.2. Iðjuþjálfi eflir og bætir iðjuþjálfun í takt við þróun og breytingar í samfélaginu. 4.3. Iðjuþjálfi hefur frumkvæði að og er virkur þátttakandi í stefnumótun heilsueflingar, hæfingar- og endurhæfingarþjónustu innan heilbrigðis-, félags-og menntakerfis. 4.4. Iðjuþjálfi lætur sig varða orðstír og stöðu iðjuþjálfunar meðal almennings, stjórnsýslu og stofnana, bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi. 4.5. Iðjuþjálfi auglýsir þjónustu sína eða starfsemi á málefnalegan hátt og gefur ekki í skyn faglega yfirburði umfram aðra fagmenn í auglýsingum eða annarri umfjöllum í fjölmiðlum. 4.6. Umfjöllun iðjuþjálfa um vörur og þjónustu skal vera fagleg og án þess að halda á lofti yfirburðum viðkomandi vöru eða þjónustu. |





