Staða iðjuþjálfa laus á Þroska- og hegðunarstöð
Þroska og hegðunarstöð tilheyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem m.a. er sinnt greiningu, ráðgjöf og fræðslu vegna barna sem hafa frávik í þroska, hegðun og/eða líðan. Starfið er hlutastarf eftir samkomulagi. Staðan losnar í september.
Verkefni:
· Þverfagleg vinna í greiningarferli
· Mat á þroska og færni barna
· Ráðgjöf til foreldra og fagfólks
Hæfniskröfur:
· Löggilding frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
· Þekking og reynsla af vinnu með börnum
Leitað er að starfsmanni sem hefur áhuga á málefnum barna og fjölskyldna og hefur getu og vilja til að vinna í þverfaglegu teymi. Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvægir eiginleikar og æskilegt að hafa til að bera frumkvæði, sjálfstæði og framsækna hugsun.
-----------------
Iðjuþjálfi óskast
Óskað er eftir iðjuþjálfa til þess að starfa með ungum fötluðum manni sem er nýfluttur í eigin íbúð í Reykjavík. Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf við uppbyggingu á notendastýrðri aðstoð í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf.
Í starfinu felst m.a. rekstur, skipulagning og stjórnun á aðstoðinni í samvinnu við einstaklinginn og foreldra hans.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall getur verið á bilinu 50-100%.
Upplýsingar veitir Gunnhildur Gísladóttir í síma 820 7287.
Umsóknir ásamt ferliskrá og upplýsingum um meðmælendur sendist á gisli.bjorns@gmail.com .
---------

------------------------

Iðjuþjálfi óskast - Heimaþjónusta Reykjavíkur – heimahjúkrun
Iðjuþjálfa vantar til starfa við Heimaþjónustu Reykjavíkur – heimahjúkrun.
Heimaþjónusta Reykjavíkur er til húsa að Álfabakk 16 í Reykjavík sinnir sólarhringsþjónustu við íbúa Reykjavíkur og Seltjarnarnes.
Starfssvið iðjuþjálfa er að meta, efla og viðhalda færni skjólstæðinga heimaþjónustunnar við daglega iðju á heimili þeirra. Meta þörf fyrir og prófa hjálpartæki á heimilum. Kennsla, ráðgjöf og mat á vinnuaðstöðu starfsfólks heimaþjónustunnar.
Um er að ræða 100% starf iðjuþjálfa, umsækjandi þarf að búa yfir góðri reynslu, samskipta- og samvinnuhæfni og hæfileikum til að vinna sjálfstætt. Starfið er laust frá 1. júlí n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi og löggildingu frá Heilbrigðisráðuneytinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórdís Magnúsdóttir, forstöðumaður hjúkrunar hjá Heimaþjónusu Reykjavíkur, í síma 411-9600,
netfang: thordis.magnusdottir@reykjavik.is
Umsóknum skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2010.
Sótt er um starfið á www.reykjavik.is – laus störf.
Reykjavík 27. apríl 2010
Heimaþjónusta Reykjavíkur
Áflabakka 16
109 Reykjavík
s. 411 - 9600
-----------------------------
Iðjuþjálfi óskast til starfa
Í haust tekur formlega til starfa nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut 66, Mörk – hjúkrunarheimili.
Heimilið verður rekið í anda Eden hugmyndafræðinnar. Áhersla er lögð á heimilislegt andrúmsloft og að heimilismenn haldi sjálfræði sínu en búi jafnframt við það öryggi sem fylgir því að eiga heima á hjúkrunarheimili. Við leitum að áhugasömum iðjuþjálfa í 80% starf frá og með 1. september.
Upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri hjúkrunar:
Ragnhildur Hjartardóttir í síma 894 – 4447 eða með tölvupósti á ragnhildur@dvalaras.is
---------------------------