Fræðslusjóður IÞÍ
Fræðslusjóður var stofnaður samkvæmt samþykkt aðalfundar IÞÍ þann 21. mars 1998. Breytingar á starfsreglum hans eru háðar samþykki aðalfundar. Stjórn IÞÍ skipar 3 fulltrúa í sjóðsstjórn, til tveggja ára í senn, og skal skipunin tilkynnt á aðalfundi félagsins. Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar sinnum á ári. Einungis skuldlausir félagar með fulla aðild eða fagaðild að IÞÍ, geta sótt um styrk úr fræðslusjóði.
Sjóðsstjórnin velur sér formann sem ber ábyrgð á að kalla stjórnina saman vegna hverrar úthlutunar úr sjóðnum. Formaður sér einnig um að skrifa fundargerðir og að tilkynna styrkþegum og gjaldkera IÞÍ skriflega um úthlutanir. Fræðslusjóður er í vörslu gjaldkera IÞÍ.
Tilgangur
Að efla framgang iðjuþjálfunar og styrkja innra starf félagsins.
Markmið
Að styrkja iðjuþjálfa vegna rannsókna og þróunarverkefna, fræðslu- og kynningarefnis auk þátttöku á námskeiðum í þágu nefnda félagsins. Sjóðnum er ekki ætlað að styrkja iðjuþjálfa til endurmenntunar í eigin þágu.
Hlutverk og ábyrgð
Að fjalla um umsóknir og úthluta styrkjum úr Fræðslusjóði tvisvar sinnum á ári, 1. maí og 1. nóvember. Umsóknir skulu berast á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 15. apríl og 15. október. Við úthlutun er tekið mið af verklagsreglum, sem sjóðsstjórnin hefur sett sér og þeirri upphæð sem er til úthlutunar hverju sinni. Stjórnin tilkynni styrkþegum skriflega um styrkupphæð og jafnframt gjaldkera IþÍ sem sér um útborgun fyrir hönd sjóðsins. Sjóðsstjórn ber einnig að upplýsa umsækjendur sem synjað er um styrk úr sjóðnum.
Samstarf
Stjórn Fræðslusjóðs hefur samskipti við þá iðjuþjálfa sem sækja um styrk úr sjóðum. Samstarf er einnig við gjaldkera IÞÍ vegna rekstrarkostnaðar sjóðsins og úthlutunar hverju sinni. Stjórn fræðslusjóðs sendir gjaldkera tilkynningu um úthlutanir úr sjóðnum og sér gjaldkeri um að greiða styrkina.
Til að sækja um styrk: