Fræðslunefnd Nefndarmenn eru 4 – 5 félagsmenn sem eru kosnir á aðalfundi félagsins til a.m.k. tveggja ára. Nefndarmenn skipta með sér verkum í tengslum við undirbúning og framkvæmd á námskeiðum og fræðslufundum. Einn eða tveir ábyrgðarmenn eru fyrir hvert námskeið/fræðslufund og skiptast nefndarmenn á að sinna því starfi. Leitast skal við að skipulagning námskeiða sé að mestu í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og Símenntun HA. Engin ákveðin embætti eru í fræðslunefnd. Ekki er æskilegt að allir nefndarmenn hætti á sama tíma og ný nefnd taki við. Tilgangur Tilgangur með starfi fræðslunefndar er að bjóða upp á fjölbreytt og áhugaverð námskeið sem svara væntingum félagsmanna og fylgja stefnum og straumum samfélagsins á hverjum tíma. Markmið Markmið nefndarinnar er að viðhalda og efla faglega þekkingu og þar með stuðla að aukinni fagvitund félagsmanna. Nefndin viðar að sér hugmyndum og óskum frá félagsmönnum varðandi áhugaverð efni. Auk þess fylgist hún með og miðlar upplýsingum er berast erlendis frá og varða sí- og endumenntur iðjuþjálfa, t.d. gegnum Internetið. Hlutverk og ábyrgð Hlutverk fræðslunefndar er:
Samstarf Samstarfsaðilar nefndarinnar eru:
Þeir nefndarmenn sem bera ábyrgð á námskeiði eða fræðslu eru tengiliðir við fyrrnefnda aðila. Samstarfið felur í sér skipulagningu námskeiða, praktíska hluti eins og útvegun húsnæðis, tækjakosts, fjölföldun gagna og gerð kostnaðaráætlunar. Engir formlegir samningar liggja fyrir milli samstarfsaðila. |





