SKÓLATÖSKUDAGAR Vikuna 21. - 25. september 2009 mun Iðjuþjálfafélagið standa fyrir Skólatöskudögum í samstarfi við Lýðheilsustöð. Skólatöskudagarnir voru haldnir víða um land síðastliðið haust og þótti takast vel, 52 iðjuþjálfar tóku þátt auk nema, og farið var í 38 skóla. Skólatöskudagar eru árlegur viðburður þar sem áhersla er lögð á forvarnir og kynningu á faginu. Hugmynd fræðslu- og kynninganefndar er að iðjuþjálfar heimsæki grunnskóla landsins, verði með fræðslu um notkun skólatöskunnar og vigti barn og skólatösku til að kanna hvort þyngd töskunnar sé hæfileg fyrir barnið. Reynst hefur vel að tveir til þrír iðjuþjálfar/iðjuþjálfanemar vinni saman þar sem töluverð vinna er í kringum fræðslu, vigtun og skráningu upplýsinga. Ekki er ætlunin að iðjuþjálfar taki heila viku frá störfum í verkefnið heldur finni dag eða hluta úr degi þessa viku sem hentar til að heimsækja skóla. Það hefur sýnt sig að ekki skiptir máli innan hvaða sviðs iðjuþjálfar starfa sem taka þátt – við höfum öll eitthvað til málanna að leggja. Þeir iðjuþjálfar/iðjuþjálfanemar sem hafa tök á að taka þátt í Skólatöskudögunum vinsamlegast skráið þátttöku ykkar fyrir 1. september til fræðslu- og kynninganefndar á eftirfarandi netfang: bjorg@sbh.is Hér fyrir neðan eru ýmis gögn sem gagnegt er að hafa í tengslum við skólatöskudaga: |





