Umsókn um styrk úr Fræðslusjóði - leiðbeiningar

Fræðslusjóði er ætlað að styrkja rannsóknir, þróunarverkefni, gerð bæklinga og kynningarefnis og annað sem stuðlar að framgangi iðjuþjálfunar. Ennfremur er hægt að sækja um styrk vegna námskeiða sem nýtast nefndum og faghópum, sem starfa á vegum félagsins og koma innra starfi þess til góða.

Styrkþegi skal skila stuttri skýrslu eigi síðar en að ári liðnu þar sem lýst er framvindu og stöðu verkefnisins sem styrkur var veittur til.

Fræðslusjóði er ekki ætlað að styrkja iðjuþjálfa til endurmenntunar.

Umsókn í þríriti og eitt eintak af fylgiskjölum sendist til:

Iðjuþjálfafélags Íslands – Fræðslusjóður, Borgartúni 6, 105 Reykjavík. 

Skilafrestur umsóknar er til: 15. apríl og 15. október
Úthlutun styrkja verður: 1. maí og 1. nóvember
 
 
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókn:
  1. Heiti verkefnis.
  2. Aðalumsækjandi. Nafn, kennitala, heimilisfang, sími/GSM, netfang, staða og vinnustaður.
  3. Aðrir umsækjendur, ef við á. Nafn, kennitala, staða, vinnustaður, hlutverk í verkefni.
  4. Tegund verkefnis:          
    a)       Rannsóknir
    b)       Staðfæring matstækis
    c)       Þýðing matstækis
    d)       Þýðingarverkefni
    e)       Bæklingar og rit
    f)        Veggspjöld
    g)       Fyrirlestrar
    h)       Námskeið nefnda og faghópa
    i)        Annað (tilgreinið)
  5. Lýsing á verkefninu.
    a)       Markmið, aðferðafræði, gildi og áætlun verkefnis eftir því sem við á.
    b)       Framkvæmda- og tímaáætlun.
    c)       Gildi verkefnis fyrir iðjuþjálfun.
  6. Kostnaðaráætlun. 
    Tilgreinið helstu kostnaðarliði og upphæð sem sótt er um.
 
Fylgiskjöl:
a)       Sýnishorn af verkefni, ef við á.
b)       Stutt rannsóknaráætlun, ef við á.