Starfsreglur Fræðslusjóðs Iðjuþjálfafélags Íslands
 
1. Heiti sjóðsins og varsla:
1.1. Sjóðurinn heitir Fræðslusjóður Iðjuþjálfafélags Íslands. Hann er í vörslu gjaldkera félagsins.
 
2. Markmið Fræðslusjóðs:
2.1. Markmið sjóðsins er að efla framgang iðjuþjálfunar og að styrkja innra starf félagsins.
 
3. Stjórn Fræðslusjóðs:
3.1. Stjórn Fræðslusjóðs er skipuð á aðalfundi, skv. lögum IÞÍ 8. grein.
3.2. Stjórn Fræðslusjóðs skal halda fundagerðabók
 
4. Tekjur og gjöld Fræðslusjóðs:
4.1. Ákveðin upphæð, kr. 300.000, á ári hverju, sem rennur af tekjum IÞÍ. Upphæðin er endurskoðuð á tveggja ára fresti.
4.2. Frjáls framlög velunnara sjóðsins.
4.3. Gjöld Fræðslusjóðs (póstburðargjöld, bréfsefni, umslög og fl.) greiðast af rekstrarfé IÞÍ.
 
5. Umsóknir um styrki:
5.1. Styrkir verða veittir tvisvar sinnum á ári. Umsóknum skal skilað til stjórnar Fræðslusjóðs fyrir 15. apríl eða 15. október, sjá leiðbeiningar. Rétt til að sækja um styrki eiga þeir sem eiga fulla aðild eða fagaðild að IÞÍ og eru skuldlausir við félagið.
 
6. Styrkveitingar:
6.1. Styrkhæf verkefni teljast meðal annars rannsóknir, þróunarverkefni, fræðslu/kynningarefni, gerð bæklinga og annað sem stuðlað getur að framgangi iðjuþjálfunar. Þar með teljast styrkir til að sækja námskeið sem nýtast hinum ýmsu nefndum og faghópum, sem starfa á vegum félagsins og koma innra starfi þess til góða.
 
7. Úthlutun:
7.1. Stjórn Fræðslusjóðs gerir grein fyrir vali styrkþega eigi síðar en 1. maí og 1. nóvember ár hvert.
7.2. Skrifstofa SIGL annast greiðslu styrkja að fenginni staðfestingu stjórnar Fræðslusjóðs.
 
8. Ágreiningur um úrskurð; vanhæfi stjórnar Fræðslusjóðs:
8.1. Úrskurði stjórnar Fræðslusjóðs um úthlutun er ekki hægt að áfrýja, en óska má eftir skriflegum rökstuðningi fyrir ákvörðun.
8.2. Ef fulltrúi í stjórn Fræðslusjóðs á hagsmuna að gæta við úthlutun skal varamaður úr stjórn IÞÍ taka sæti hans í nefndinni.
 
9. Gildistaka starfsreglna og breytingar:
9.1. Starfsreglur þessar taka gildi þann 4. mars 2005.
9.2. Breytingar á starfsreglum eru háðar samþykki aðalfundar IÞÍ.