Fræðslusjóður IÞÍ Fræðslusjóði er ætlað að styrkja þróunarverkefni, rannsóknir, gerð bæklinga og kynningarefnis og annað sem stuðlar að framgangi iðjuþjálfunar. Ennfremur er hægt að sækja um styrk vegna námskeiða sem nýtast nefndum og faghópum, sem starfa á vegum félagsins og koma innra starfi þess til góða. Fræðslusjóði er ekki ætlað að styrkja iðjuþjálfa til endurmenntunar. Við úthlutun tekur stjórn fræðslusjóðs mið af verklagsreglum, sem hún hefur sett sér og þeirri upphæð sem er til úthlutunar hverju sinni. Stjórnin tilkynnir skriflega um afgreiðslu umsókna. Styrkir úr sjóðnum eru skattskyldir en hægt er að leggja fram kostnað á móti á skattframtali. Sjá úthlutanir styrkja á árunum 1998-2004 hér á síðunni. Samkvæmt verklagsreglum eru eftirfarandi verkefni styrkhæf svo fremi þau séu í þágu iðjuþjálfunar og IÞÍ:
Fræðslusjóður starfar skv. starfsreglum sem settar eru af aðalfundi IÞÍ.
|





