Iðjuþjálfun aldraðra Faghópurinn hefur verið starfandi nokkuð lengi, eða síðan 1999. Hópurinn samanstendur af tæplega 30 iðjuþjálfum víðsvegar af Suðvestur- og Suðurlandi allt frá Akranesi til Hellu. Hópurinn hefur komið saman á tveggja mánaða fresti og er skipst á að hittast þar sem starfandi iðjuþjálfi er á öldrunarstofnun. Gefur það oft góðar hugmyndir í farteskið að sjá hvað og hvernig hinir gera. Rædd eru málefni aldraðra á líðandi stundu, komið með góðar hugmyndir, miðlað fróðleik frá námskeiðum eða fundum og sagt frá nýjungum. Allir iðjuþjálfar sem láta sig málefni aldraðra skipta eru velkomnir í hópinn. Tengiliðir eru: Sigurbjörg Hannesdóttir, iðjuþjálfi á Hrafnistu í Reykjavík, sibba@hrafnista.is og Katla Kristvinsdóttir, iðjuþjálfi á Grund katla@grund.is |





