Iðjuþjálfun barna 

Undanfarin ár hafa iðjuþjálfar sem vinna með börnum og ungmennum starfrækt faghóp um iðjuþjálfun barna. Faghópurinn hefur verið virkur í um það bil 15 ár og fundir eru haldnir reglulega. Markmiðin með starfseminni eru helst þau að miðla þekkingu um barnaiðjuþjálfun innan hópsins sem utan og að stuðla að lifandi umræðu um áherslur í þjónustu iðjuþjálfa við börn og ungmenni og fjölskyldur þeirra. 

Meðal annars hefur verið unnið að því að setja saman, þýða og efla notkun matstækja. Sú vinna hefur bæði farið fram í tengslum við störf og nám iðjuþjálfa og iðjuþjálfanema við Háskólann á Akureyri. Iðjuþjálfar innan faghópsins hafa gegnum tíðina sótt sér og miðlað þekkingu hér á landi sem og erlendis. Faghópurinn hefur tekið þátt í að skipuleggja námskeið með kunnum erlendum iðjuþjálfum á borð við Anitu Bundy, Helen Polatajko, Wendy Coster og Winnie Dunn svo eitthvað sé nefnt. 

Fundir faghópsins, sem ýmist eru haldnir í hádegi eða að kveldi, eru opnir öllum iðjuþjálfum og iðjuþjálfanemum sem áhuga hafa á þessu sérsviði innan fagsins. Í dag telur hópurinn um 30 skráða meðlimi. Þar af eru tveir sem skipa framkvæmdanefnd, en í hennar hlut fellur að halda utan um fundarboðun og fundargerðir auk annars skipulags sem til fellur. 

Nýlega var stofnuð Norðurlandsdeild innan faghópsins, en iðjuþjálfum sem sinna þjónustu við börn og ungmenni norðan heiða hefur fjölgað til muna með tilkomu námsbrautar í iðjuþjálfun. Tíu iðjuþjálfar eru nú skráðir í faghópinn þar nyrðra. Tengiliður Norðurlandsdeildar er Sara Stefánsdóttir, sem starfar í Síðuskóla á Akureyri, netfang: sarastef@internet.is

Framkvæmdastýrur faghópsins eru þær Valrós Sigurbjörnsdóttir valros@slf.is og Helga Guðjónsdóttir helga@slf.is sem starfa báðar á Æfingastöð SLF. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í faghópinn eða vilja fræðast nánar um starfsemina er bent á að hafa samband við þær á netföng þeirra.