Faghópur um iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (FIS)
Faghópur um iðjuþjálfun í íslensku samfélagi: Staða og þróun (FIS) var stofnaður 17. febrúar 2005 fyrir tilstuðlan nokkurra áhugasamra félagsmanna. Hópurinn lætur sig varða iðjuþjálfun á Íslandi og stöðu og hlutverk iðjuþjálfastéttarinnar í fortíð, nútíð og framtíð. Þetta eru grasrótarsamtök, opin öllum þeim félögum sem áhuga hafa á málefninu. Fundir í faghópnum eru haldnir um það bil mánaðarlega á tímabilinu september til maí að desember undanskildum. Fundarformið er óformlegt, en hópurinn ákveður í sameiningu fundarefni fyrir hvert misseri og einhverjir tveir taka að sér að boða og skipuleggja fundi. Þátttakendur skiptast þannig á að hafa umsjón með starfseminni í nokkra mánuði í senn.
Tilgangur faghópsins er skiptast á skoðunum um fagtengd málefni eins og sjálfstæði og vald iðjuþjálfastéttarinnar, ytri og innri ímynd fagsins og tækifæri til eflingar og framgangs. Vonast er til að þessi skoðun og umræða muni síðar meir skila sér í tillögum að nýjum leiðum til að kynna og markaðssetja iðjuþjálfun. Hópurinn fjallar ekki um kjaramál eða þjónustu við einstaka skjólstæðingahópa. Í september 2006 voru rúmlega 20 manns skráðir í faghópinn. Á þá níu fundi sem haldnir hafa verið hafa mætt allt frá sex upp í 12 manns og er það almennt mál þátttakenda að umræður sem þessar séu gagnlegar og að þeir fari af fundi með „góða tilfinningu” og sterkara fagsjálf.
Tilkynningar um starfssemi hópsins og tengiliði á hverju tímabili eru sendar öllum félögum IÞÍ í gegnum þjónustuskrifstofu SIGL. Áhugasömum er því bent á að vera vakandi fyrir þessum auglýsingum. Þeir sem vilja taka þátt í starfinu eða vera á póstlista FIS geta einnig haft samband við framkvæmdastýrur en þær eru Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir holmdis@slf.is og Harpa Ýr Erlendsdóttir harpa@slf.is.