Í starfsstétt sem hefur skráðar siðareglur er mikilvægt að allir hljóti nokkra þjálfun í siðferðilegri umhugsun og rökræðu auk almennrar fræðslu um siðareglur og hlutverk þeirra. Umræðufundir á vinnustöðum eða meðal afmarkaðra hópa í félaginu geta verið gagnlegir og lagt grunn að því hvernig fólk bregst við og greiðir úr siðferðilegum álitamálum starfsins. Siðareglur eru góður vegvísir í okkar starfi og því mikilvægt að hafa lifandi umræðu um þær meðal okkar. Á þessari síðu er að finna pistla siðanefndar IÞÍ sem birst hafa í fagblaði iðjuþjálfa og fjalla um einstaka greinar siðareglnanna.
|





