Taugaiðjuþjálfun
Faghópur um iðjuþjálfun fólks með skerta taugastarfsemi var stofnaður mánudaginn 27. apríl, 2009. Á fyrsta fundinum voru rædd markmið hópsins og væntingar fundarmanna til samstarfsins.
Helstu markmið faghópsins eru:
• Viðhalda og efla þekkingu og færni iðjuþjálfa sem starfa með fólki með iðjuvanda
vegna skertrar taugastarfsemi
• Gagnkvæm upplýsingamiðlun og skoðanaskipti, þannig að allir leggi eitthvað af
mörkum og græði á samstarfinu
• Vekja athygli á nýrri þekkingu
• Hvetja til umræðu um áherslur í þjónustu iðjuþjálfa við þennan skjólstæðingshóp.
Gert er ráð fyrir fjórum kvöldfundum á ári til að byrja með.
Tengiliðir hópsins fyrst um sinn eru Margrét Sigurðardóttir, Sigrún Garðarsdóttir og Valerie Harris. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í faghópinn eða vilja fræðast nánar um starfið geta haft samband við þær á netföng þeirra.